Skilaboð um alvarleika stöðunnar muni koma fram

mbl.is/Kristinn Magnússon

Um 150 vísindamenn munu taka til máls á alþjóðlegri ráðstefnu sem fjallar um afdrif íss og snævar í hlýnandi loftslagi Jarðar í Hörpu í næstu viku. Alls er búist við að fleiri en 330 vísindamenn sæki ráðstefnuna frá 33 löndum í sex heimsálfum. 

Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofu Íslands sem stendur fyrir ráðstefnunni, segir að í þeim erindum sem verða flutt muni koma fram skýr skilaboð um alvarleika loftslagsbreytinga, sem sé ekki hvað síst sýnileg á norðurhveli.

Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofu Íslands.
Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofu Íslands. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Kynna nýjustu niðurstöður

„Jöklar hafa undanfarin ár rýrnað um alla jörð og hinar stóru ísbreiður Grænlands og Suðurskautslandsins leggja sífellt meira til hækkunar heimshafanna. Snjóa leysir fyrr að vori á norðurslóðum, bráðnun sífrera í fjöllum leiðir til aukinnar skriðuhættu og útbreiðsla hafíss fer minnkandi í Norðurhöfum.

Þessi ummerki hlýnandi loftslags eru vel þekkt og á ráðstefnunni Cryosphere 2022 munu vísindamenn frá flestum heimsálfum kynna nýjustu niðurstöður rannsókna á þessu sviði. Freðhvolfið (e. cryosphere) nær yfir allt frosið vatn á jörðinni og er það nýlunda að fjalla um alla þessa þætti á sömu ráðstefnunni,“ segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur ráðstefnuna á mánudaginn. Þá munu Petteri Taalas, aðalritari Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar, og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra halda opnunarávörp.

Einn fyrirlestur ráðstefnunnar er opinn almenningi. Verður hann í dag klukkan fjögur í Hörpu.

Stærsta verkefni samfélagsins

„Það að takast á við loftslagsbreytingar er stærsta verkefni samfélagsins um ókomin ár og vöktun, rannsóknir og miðlun upplýsinga um loftslagsbreytingar er að verða sífellt stærri og mikilvægari þáttur í hlutverki Veðurstofunnar,“ er haft eftir Árna í tilkynningunni.

„Viðbrögð okkar þurfa að byggja á samtali fulltrúa ríkisstjórna, alþjóðastofnana og vísindafélaga og þessi ráðstefna er hluti af því samtali. Ég veit að í erindum sem verða flutt koma fram skýr skilaboð um alvarleika stöðunnar sem er ekki hvað síst sýnileg á norðurhveli, en þar eru breytingarnar örari en annarsstaðar á jörðinni,“ er enn fremur haft eftir Árna sem gegnt hefur formennsku í Global Cryosphere Watch (GCW) sem er samstarfsvettvangur um vöktun á breytingum í freðhvolfinu á vegum Alþjóðlegu veðurfræðistofnunarinnar (WMO).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert