Fara yfir það sem gerðist í Úlfarsfelli

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti piltinn í Úlfarsfell.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti piltinn í Úlfarsfell. Ljósmynd/Jóhannes Birgir Guðvarðarson

Hjólreiðasamband Íslands mun á reglulegum fundi sínum í september fara yfir það sem gerðist í Úlfarsfelli á laugardag þegar 17 ára piltur slasaðist alvarlega í hjólreiðakeppni í fjallabruni.

Þetta segir Björgvin Tómasson, meðstjórnandi Hjólreiðasambands Íslands, spurður hvort til greina komi að breyta öryggisreglum vegna slyssins.

Pilturinn er að jafna sig eftir aðgerð á baki sem hann gekkst undir.

Flestir klæðast mótorhjólabrynjum

Björgvin segir fjallabrun vera ákveðið áhættusport en að slysin þar séu ekkert fleiri en í öðrum sambærilegum íþróttum.

Fjallabrun gengur út á að hjóla niður merkta braut í fjalli eins hratt og hægt er. Tvær ferðir eru farnar og gildir betri tíminn. Flestir keppendur klæðast mótorhjólabrynjum að framan og á bakinu ásamt olnboga- og hnéhlífum. Óheimilt er að taka þátt í mótum nema að vera með lokaðan hjálm með kjálkahlíf. Einnig skal vera með augnhlífar.

Keppti á alþjóðlegu móti fyrr í sumar

Mótið um helgina var bikarmót og var 41 keppandi skráður til leiks. Halda átti fjögur slík mót í ár, en mótinu á laugardag var aflýst vegna slyssins. Einnig er keppt á einu Íslandsmóti á hverju sumri.

Sömuleiðis er keppt erlendis og var pilturinn sem slasaðist einmitt á meðal fyrstu Íslendinganna sem kepptu í fjallabruni á alþjóðlegu móti í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert