Mikill fjöldi ofbeldismanna undir 18 ára

Talið er að rekja megi aukna aðsókn til #MeToo bylgju …
Talið er að rekja megi aukna aðsókn til #MeToo bylgju sem fór af stað vorið 2021. mbl.is

Árið 2021 leituðu 952 einstaklingar til Stígamóta sem brotaþolar kynferðisofbeldis. Þar af komu 465 á Stígamót í fyrsta skipti. Þetta er mesti fjöldi nýrra brotaþola í ráðgjöf á einu ári. Þó voru 200 einstaklingar á biðlista eftir viðtali í lok ársins. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu Stígamóta fyrir árið 2021 sem kom út í dag.

Heildarfjöldi viðtala var 3.381 á árinu og hefur ekki verið meiri frá stofnun Stígamóta. Jafnframt sótti metfjöldi aðstandenda viðtöl eða 96 manns. Gera má ráð fyrir að þessi aukna aðsókn í þjónustuna komi í kjölfar nýrrar #MeToo bylgju sem fór af stað vorið 2021. Þá varð mikil vakning meðal þolenda um að skila skömminni, leita sér aðstoðar og vinna úr afleiðingum ofbeldisins.

Langflest þeirra sem leituðu til Stígamóta á árinu komu vegna nauðgana, eða 67,3 prósent. Þá leituðu 54,4 prósent til Stígamóta vegna kynferðislegrar áreitni og 33,3 prósent vegna sifjaspella. Mun fleiri en áður nefna stafrænt kynferðisofbeldi sem ástæðu komu en áður. Það hlutfall fór úr 8,6 prósentum í 21,3 prósent á einu ári.

Vinur eða kunningi í flestum tilfellum

Gögnum var safnað um 700 ofbeldismenn á síðasta ári. Langflestir þeirra voru karlar, eða 95,6 prósent. Flestir brotamannanna voru á aldrinum 18-29 ára, eða 41 prósent. 107 gerendur voru á aldrinum 14-17 ára þegar brotið var framið, eða 16,7 prósent. Í fréttatilkynningu frá Stígamótum er tekið fram að það veki athygli hve hátt hlutfall brotamanna var undir 18 ára aldri.

Í langflestum nauðgunarmálum var gerandinn vinur eða kunningi eða 34,8 prósent en næstalgengast var að gerandinn væri maki eða fyrrverandi maki, eða í 19,6 prósent tilvika.

Flestir brotaþolanna sem leituðu til Stígamóta 2021 voru konur, eða 88,2 prósent. Karlar voru 11,2 prósent og önnur kyn 0,6 prósent. Flest voru á aldrinum 18-29 ára við komu til Stígamóta eða 52,6 prósent. Í tilkynningunni segir að það veki athygli að 66,4 prósent brotaþola hafi verið yngri en 18 ára þegar þau voru fyrst beitt kynferðisofbeldi. Það sé í samræmi við niðurstöður fyrri ára og því sé ljóst að börn og unglingar séu í sérstakri hættu á að verða fyrir kynferðisofbeldi.

Algengustu afleiðingar sem þolendur sögðust kljást við voru kvíði, sektarkennd, skömm, depurð og léleg sjálfsmynd. Þá höfðu 23 prósent gert tilraun til sjálfsvígs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert