Milljarða króna framkvæmd senn í gagnið

Hörpur, myllur og færibönd á hinu nýja athafnasvæði.
Hörpur, myllur og færibönd á hinu nýja athafnasvæði. mbl.is/Sigurður Bogi

Ný efnisvinnsla Björgunar hf. í Álfsnesi við Kollafjörð verður gangsett í næstu viku. Niðri við sjó á þessum slóðum hefur verið útbúinn hundrað metra langur viðlegukantur en þangað koma að landi skip sem sækja möl og sand í neðansjávarnámur í Hvalfirði og á Faxaflóa.

Efninu, hundruðum þúsunda tonna á ári, verður dælt í land og því svo mokað á tæki og færibönd til fullvinnslu og hreinsunar.

Fara þurfti í umfangsmikla jarðvinnu og landmótun á Álfsnesi til að útbúa athafnasvæðið þar. Í því skyni voru sprengdar niður klappir og losað um grjót, sem aftur nýttist til hafnargerðar.

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Þorsteinn Víglundsson er framkvæmdastjóri Hornsteina hf. sem er móðurfélag Björgunar.
Þorsteinn Víglundsson er framkvæmdastjóri Hornsteina hf. sem er móðurfélag Björgunar. mbl.is/Sigurður Bogi
Skip við viðlegukantinn nýja, sem verður tilbúinn að næstu mánuðum.
Skip við viðlegukantinn nýja, sem verður tilbúinn að næstu mánuðum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert