Stór vatnslögn fór í sundur

Töluverður vatnselgur er í Hvassaleitinu í Reykjavík en samkvæmt upplýsingum mbl.is fór stór vatnslögn í sundur.  

Frá vettvangi í kvöld. Bílastæði á floti.
Frá vettvangi í kvöld. Bílastæði á floti. mbl.is/Árni Sæberg

 Hætt er við því að vatn flæði inn í kjallara í nærliggjandi húsum en slökkviliðið er við störf á svæðinu. 

Umferð mun vera þung í einhverjum götum meðan á aðgerðum stendur að sögn sjónarvotta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert