Mögulega aftur norðurljós í kvöld

Fréttaritari mbl.is tók myndir af fegurðinni út í Gróttu í …
Fréttaritari mbl.is tók myndir af fegurðinni út í Gróttu í gær. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Möguleiki er á að landsmenn fái að njóta norðurljósa aftur í kvöld, en öflug norðurljós mátti sjá víðsvegar um landið í gærkvöldi.

„Í kvöld er þokkaleg spá. Það gæti alveg komið eitthvað smá en eins og staðan er núna þá er Ísland ekki inn í svæðinu þar sem það eiga að vera norðurljós en það gæti alveg breyst,“ segir Sigríður Kristjánsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands og formaður stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, í samtali við mbl.is.

Norðurljósin skinu skært í gær.
Norðurljósin skinu skært í gær. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

„Svo gæti komið næstu daga af því að það er opin kórónugeil á sólinni. Svona kórónugeil spýtur út fullt af ögnum sem koma svo til jarðar og þá fáum við norðurljós,“ bætir Sigríður við.

Að sögn Sigríðar eru oft flott norðurljós í kringum jafndægur sem eru í lok september. Því sé ekki óvenjulegt að svona öflug norðurljós hafi skinið í gær.

Norðurljósaspá Veðurstofunnar má sjá hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert