Sluppu fyrir horn

Ekkert tjón varð í Kringlunni í gær þegar að vatnslögn …
Ekkert tjón varð í Kringlunni í gær þegar að vatnslögn fór í sundur. Ljósmynd/Hanna Andrésdóttir

Ekkert tjón varð í verslunarmiðstöðinni Kringlunni í gær þegar að vatn flæddi stríðum straumum um götur í Hvassaleitinu eftir að 80 sentímetra kaldavatnslögn með þrýstingi á fór í sundur. Þetta staðfesti Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri verslunarmiðstöðvarinnar.

Varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu staðfesti í morgun við mbl.is að vatn hefði flætt inn í hús í nágrenninu, kjallara, bílskúra og bíla. Tveir dælubílar voru sendir til að sinna verkefninu og um miðnætti tóku Veitur við á vettvangi.

Frá vettvangi í gærkvöldi.
Frá vettvangi í gærkvöldi. mbl.is/Árni Sæberg

Finna til með þeim sem urðu fyrir tjóni

Að sögn Sigurjóns Arnar náði straumurinn ekki þeirri vatnshæð að vatn skyldi flæða inn.

„Við sluppum fyrir horn. Við erum alsæl með það en finnum til með þeim sem verða fyrir tjóni,“ segir Sigurjón Örn í samtali við mbl.is.

„Öryggisgæslan fylgist vel með öllu innan og utandyra svo við erum vel vöktuð,“ bætti hann við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert