Rannsókn á skotárásarmáli að ljúka

Lögregluaðgerðir í Miðvangi í júní.
Lögregluaðgerðir í Miðvangi í júní. mbl.is/Tómas

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á skotárás í Miðvangi í Hafnarfirði í júní er við það að ljúka og verður málið sent til ákærusviðs lögreglunnar í kjölfarið. Þá var maður, sem handtekinn var vegna málsins, úrskurðaður í áframhaldandi vistun í fjórar vikur frá og með 17. ágúst, en þá rann fyrri úrskurður út.

Þetta staðfestir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri deild lögreglunnar, í samtali við mbl.is.

Árás­in er rann­sökuð sem til­raun til mann­dráps. Maður­inn, sem grunaður er um að hafa skotið á tvær kyrr­stæðar bif­reiðar milli fjöl­býl­is­húss og leik­skóla, er á sjö­tugs­aldri. Af um­merkj­un­um á bíln­um sem skot hæfði, má leiða lík­ur að því að maður­inn hafi notað riff­il. 

Vist­un á viðeig­andi stofn­un er hliðstætt úrræði við gæslu­v­arðhald og þurfa því skil­yrði fyr­ir gæslu­v­arðhaldi að vera upp­fyllt svo unnt sé að úr­sk­urða ein­stak­ling í slíka vist­un, en úrræðinu er beitt í und­an­tekn­ing­ar­til­fell­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert