Veiðimaður fékk raflost

Haustbirta við Eystri-Rangá.
Haustbirta við Eystri-Rangá. mbl.is/Árni Sæberg

Toppurinn á veiðistöng veiðimanns í fluguveiði í Eystri-Rangá endaði í háspennulínu í morgun, með þeim afleiðingum að maðurinn fékk háspennustraum í gegnum sig.

Var hann í kjölfarið fluttur með sjúkrabíl af vettvangi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi var maðurinn talsvert brunninn á fótum og kviði en ekkert frekar er vitað um líðan hans.

Unnið er að rannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert