Hraunmolinn ekki þakinn gulli

Gossvæðið hefur verið vinsæll áfangastaður ferðamanna, athafnafólks og listamanna.
Gossvæðið hefur verið vinsæll áfangastaður ferðamanna, athafnafólks og listamanna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hraunmoli með gylltri útfellingu, sem eldfjallafræðingurinn Dr. Evgenia Ilyinskaya fann á gosstöðvunum í Fagradalsfjalli fyrir um viku síðan reyndist vera þakinn málningu með gljásteini. Var því velt upp hvort um gull hafi verið að ræða.

Evgenia segist forvitin að vita hver hafi verið að verki en gosstöðvarnar hafa verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna, athafnafólks og ekki síst listamanna.

„Því miður“

„Ef þið voruð að velta fyrir ykkur hvort þetta hafi verið gull þá er svarið nei, því miður,“ tísti hún í kvöld. Ekki hafi verið útlit fyrir að um málningu hafi verið að ræða, jafnvel undir smásjá steindafræðings nokkurs, sem taldi ólíklegt að um málningu væri að ræða.

Evgenia ræddi um fundinn við DV fyrir um viku síðan en þá var næst á dagskrá að skoða sýni úr hraunmolanum í öreindasmásjá, sem myndi greina frumefnið.

„Öreindasmásjáin sér í gegnum þetta,“ skrifaði hún. Hraunið var frá gosinu í Fagradalsfjalli vorið 2021 og því ekki ólíklegt að listamaður hafi verið að verki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert