Stjórnunar- og verndaráætlun Geysissvæðisins staðfest

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og  Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra tóku þátt í athöfn við Geysi í dag,  þar sem umhverfis-, orku- og loftslagráðherra staðfesti stjórnunar- og verndaráætlun Geysissvæðisins.

Geysissvæðið í Haukadal var friðlýst 17. júní árið 2020. Það er eitt þekktasta goshverasvæði jarðar og er einstakt á heimsvísu, en friðlýsingin á að tryggja vernd jarðminja, örvera og gróðurs. Geysissvæðið nýtist jafnframt til vísindarannsókna og fræðslu, ásamt því að bjóða upp á möguleika til útivistar og ferðaþjónustu, en í stjórnunar- og verndaráætlun svæðisins er m.a. fjallað um fræðslu og miðlun upplýsinga, verndaraðgerðir og aðgengi ferðamanna, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.

Forsætisráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ásamt oddvita og sveitastjóra …
Forsætisráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ásamt oddvita og sveitastjóra Bláskógarbyggðar. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Er stjórnunar- og verndaráætlun eins konar leiðarljós fyrir þá aðila sem stýra svæðinu, sem og þá sem vilja vera þar með starfsemi eða þurfa samþykki fyrir aðgerðum og viðburðum, segir ennfremur. 

Fjölmargir hverir og laugar eru á Geysissvæðinu og eru goshverirnir Geysir og Strokkur þeirra þekktastir. Á svæðinu er einnig hverahrúður á stóru samfelldu svæði, sem og yfir 125 tegundir háplantna og yfir 20 mosategundir. Á svæðinu eru einnig þekktar menningarminjar, en við síðustu ríkisstjórnarskipti fluttist málaflokkur menningarminja til umhverfis- orku og loftslagsráðuneytisins. Eru konungssteinarnir þrír sem reistir voru til minja um heimsóknir þeirra Kristjáns IX árið 1874, Friðriks VIII árið 1907 og Kristjáns X árið 1921 þeirra þekktastar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert