Sagðar „of vitlausar eða jafnvel geðveikar“

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, ásamt Ingu Sædal, formanni …
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, ásamt Ingu Sædal, formanni flokksins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Efstu konur á lista Flokks fólksins á Akureyri segjast sífellt hafa verið lítilsvirtar og hunsaðar af karlkyns forystu flokksins og aðstoðarmönnum hennar.

Í yfirlýsingu sem þær sendu út í kjölfar yfirlýsingar Guðmundar Inga Kristinssonar, varaformanns flokksins, lýsa þær „ömurlegri reynslu“ sinni af þessum samskiptum.

„Á trúnaðarfundum flokksins vorum við sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar til að vera marktækar. Sumar okkar máttu sæta kynferðislegu áreiti og virkilega óviðeigandi framkomu til viðbótar við að vera sagðar ekki starfinu vaxnar og geðveikar,“ segir í yfirlýsingunni sem þær Málfríður Þórðardóttir, Tinna Guðmundsdóttir og Hannesína Scheving Virgild Chester skrifa undir.

Andúð á fundi oddvita

Fram kemur að oddviti flokksins hafi boðað til fundar á heimili sínu 10. september þar sem konurnar vonuðust til að hægt væri að „koma á ró og vinnufriði á meðal okkar“. Mikil andúð hafi aftur á móti mætt þeim og varabæjarfulltrúi hefði yfirgefið fundinn grátandi eftir tíu mínútur.

„Oddvitinn dró þá fram bréf sem hann las upp og hótaði að birta. Bréf sem var hlaðið rógburði, rangfærslum og hótunum um að við misstum starfsleyfi okkar sem heilbrigðisstarfsmenn ef við létum ekki að stjórn.  Alla daga síðan hafa þessar hótanir verið viðvarandi og umræddu hótunarbréfi dreift.“

Í yfirlýsingunni segir jafnframt að samstarfið hafi verið afar taugatrekkjandi og valdið þeim ómældri vanlíðan og kvíða.

„Það er okkur sárara en tárum taki að þurfa að stíga fram og ræða opinberlega um þá erfiðleika og þau innanflokksátök sem við höfum verið að ganga í gegnum. Ástæðan að sjálfsögðu sú að við viljum ekki á neinum tímapunkti skaða flokkinn og allt það góða fólk innan Flokk fólksins sem er með hjartað á réttum stað. En nú, þegar varaformaðurinn okkar hefur stígið fram og ætlar augljóslega að taka málið föstum tökum, finnst okkur ekkert annað koma til greina en að segja okkar sögu,“ segir í yfirlýsingunni.

Forystufólk í Flokki fólksins á Akureyri.
Forystufólk í Flokki fólksins á Akureyri. Ljósmynd/Flokkur fólksins

Yfirlýsingin í heild sinni:

„Í kjölfar yfirlýsinga varaformanns Flokks fólksins í morgun höfum við sem erum þolendur alls þessa ofbeldis sem um er rætt, ákveðið að stíga fram og freista þess að útskýra líðan okkar og ömurlega reynslu af samskiptum við þessa ónefndu karlaforystu og aðstoðarmanna þeirra frá því snemma í vor.  

Eftir síðustu bæjarstjórnarkosningar þar sem flokkurinn okkar vann stórsigur var mikill hugur í okkur öllum, jákvæðni og þakklæti til allra þeirra sem gáfu okkur sitt dýrmæta atkvæði og um leið tækifæri til að koma kærleiksríkum góðum málstað Flokks fólksins á framfæri. Við ætluðum að vinna af krafti við að byggja upp félagsstarf flokksins okkar hér heima. Einnig ætluðum við að hafa samráð varðandi öll bæjarráðsmál með því að styðja og styrkja hvert annað.  En í ljósi reynslunnar af samskiptum við karlkyns forystu flokksins og aðstoðarmanna hefur þessi góði vilji okkar frekar litast af draumsýn en veruleika.

Efstu konur á lista flokksins voru sífellt lítilsvirtar og hunsaðar. Á trúnaðarfundum flokksins vorum við sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar til að vera marktækar. Sumar okkar máttu sæta kynferðislegu áreiti og virkilega óviðeigandi framkomu til viðbótar við að vera ekki starfinu vaxnar og geðveikar.  Þann 10. sept. sl. boðaði oddviti flokksins til fundar á heimili sínu þar sem við töldum að ætti að freista þess að koma á ró og vinnufriði á meðal okkar.  Á fundinum mætti okkur mikil andúð og kuldi og yfirgaf varabæjarfulltrúi hann grátandi eftir tíu mínútur.  Oddvitinn dró þá fram bréf sem hann las upp og hótaði að birta. Bréf sem var hlaðið rógburði, rangfærslum og hótunum um að við misstum starfsleyfi okkar sem heilbrigðisstarfsmenn ef við létum ekki að stjórn. Alla daga síðan hafa þessar hótanir verið viðvarandi og umræddu hótunarbréfi dreift.

Eitt er víst að þetta „samstarf“ hefur verið einstaklega taugatrekkjandi og valdið okkur öllum ómældri vanlíðan og kvíða. 

Að lokum viljum við segja þetta:

Það er okkur sárara en tárum taki að þurfa að stíga fram og ræða opinberlega um þá erfiðleika og þau innanflokksátök sem við höfum verið að ganga í gegnum. Ástæðan er að sjálfsögðu sú að við viljum ekki á neinum tímapunkti skaða flokkinn og allt það góða fólk innan Flokks fólksins sem er með hjartað á réttum stað. En nú, þegar varaformaðurinn okkar hefur stígið fram og ætlar augljóslega að taka málið föstum tökum, finnst okkur ekkert annað koma til greina en að segja okkar sögu.

Virðingarfyllst,

Málfríður Þórðardóttir

Tinna Guðmundsdóttir

Hannesína Scheving Virgild Chester

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert