Fjárlagafrumvarpið boði niðurskurð í velferð

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Ljósmynd/Aðsend

BSRB kallar eftir því að almannaþjónustan verði styrkt og tryggt verði aukið fjármagn til barnabóta og húsnæðismála. „Það fæli í sér raunverulega stefnumörkun um fjárfestingu í fólki og friði.“

Þetta kemur fram í grein Sonju Ýrar Þorbergsdóttur, formanns BSRB, á heimasíðu samtakanna.

„BSRB hefur ítrekað bent á mikilvægi þess að styrkja almannaþjónustuna og tekjutilfærslukerfin til að efla velferð hér á landi. Fjárlagafrumvarpið svarar ekki þessu ákalli heldur boðar þvert á móti niðurskurð í opinberri þjónustu og stefnuleysi í tekjutilfærslukerfunum,” er haft eftir Sonju.

Þá segir að þrátt fyrir að í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2023 sé teiknuð upp mynd af hagkerfi á blússandi siglingu er staðreyndin sú að kaupmáttur hefur rýrnað verulega frá áramótum og stýrivextir hækkað sem hefur rýrt kaupmátt enn frekar.

Lítið gert til að tryggja viðunandi lífskjör

„Í nýlegri greiningu ASÍ kemur fram að tekjuójöfnuður hefur vaxið og skattbyrði allra hópa aukist nema efstu tekjutíundinni. Könnun Vörðu sem framkvæmd var í árslok 2021 sýndi ennfremur fram á að þriðjungur launafólks í aðildarfélögum BSRB og ASÍ átti erfitt með að ná endum saman.“

Sonja bætir við að fjárlagafrumvarpið boði aftur á móti niðurskurð í velferð og lítið sé gert til að tryggja viðunandi lífskjör fyrir fyrir þá hópa sem helst þurfa á því að halda.

„Heilbrigðisþjónustan er fjársvelt og líður fyrir skort á starfsfólki en í frumvarpinu er fjárveiting til reksturs sjúkrahúsþjónustu lækkuð um rúmlega 700 milljónir króna að raunvirði. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að bæta mönnun og starfsaðstæður svo hægt sé að veita öllum viðeigandi þjónustu óháð efnahag og búsetu með lægri fjárveitingum til sjúkrahúsþjónustu?“ spyr Sonja.

Hér má lesa grein Sonju í heild sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert