Stunginn þrisvar í undirgöngum

Drengurinn er aðeins 18 ára.
Drengurinn er aðeins 18 ára. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Átján ára drengur var stunginn þrisvar með hníf síðdegis í gær í undirgöngum við Sprengisand í Reykjavík.

Þetta staðfestir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu við fréttastofu Rúv

Drengurinn var fluttur á gjörgæslu þar sem hann gekkst undir aðgerð og er hann ekki talinn í lífshættu. 

Heimildir fréttastofu Rúv herma að drengurinn sem ráðist var á, sé þroskaskertur. Hann hafi verið á leið á íþróttaæfingu þegar ráðist var hann og reyndi árásarmaðurinn að hafa af honum hjól.

Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn og úrskurðaður í síbrotagæslu til 12. október.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert