Kærir Pál fyrir hótun

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans.
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. mbl.is/Hari

Þórður Snær Júlíusson blaðamaður hefur kært Pál Steingrímsson, skipstjóra hjá Samherja, fyrir hótun.

Þetta segir Þórður í grein sem hann birtir í dag á Kjarnanum, sem hann ritstýrir.

„Hér er einnig hægt að greina frá því að ég, og fleiri fjöl­miðla­menn, höfum kært Pál Stein­gríms­son fyrir hótun í okkar garð sem barst í tölvu­pósti í júlí 2022. Sú kæra hefur verið und­ir­rituð og mót­tekin hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og er nú til rann­sóknar þar,“ skrifar Þórður.

Þá tekur hann fram að full ástæða hafi verið til að taka hótunina alvarlega, meðal annars vegna þess að Páll hafi gefið til kynna á samfélagsmiðlum að hann sé ekki fráhverfur því að nota skotvopn á blaðamenn.

Aðalsteinn leitar til Mannréttindadómstóls Evrópu

Þá hefur Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, falið lögmanni sínum að óska eftir því að Mannréttindadómstóll Evrópu skeri úr um það hvort aðgerðir lögreglu gegn honum og fleiri blaðamönnum hafi staðist lög.

Tilefni þess er að Aðalsteinn og fleiri blaðamenn fengu stöðu sakbornings vegna meintra brota á friðhelgi einkalífs og umfjöllunar um svokallaða „skæruliðadeild“ Samherja. Blaðamennirnir voru boðaðir í skýrslutöku hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.

„Ég er enn á því að nauðsynlegt sé að fá úr því skorið hvort þessi leiðangur lögreglunnar nyrðra sé lögmætur. Því hef ég falið lögmanni mínum að óska eftir því að Mannréttindadómstóll Evrópu fjalli efnislega um málið. Slíkt mál hefur því verið höfðað,“ skrifar Aðalsteinn á vef Stundarinnar.

Héraðsdóm­ur komst að þeirri niðurstöðu að lög­reglu­stjór­an­um á Norður­landi eystra hefði ekki verið heim­ilt að veita Aðal­steini rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn vegna um­fjöll­un­arinnar. 

Landsréttur vísaði í kjölfarið frá máli Aðalsteins gegn embætti lög­reglu­stjór­ans á Norður­landi eystra. Aðalsteinn kærði frávísunarúrskurðinn til Hæstaréttar sem vísaði málinu einnig frá.

Leiðrétt: Áður var fullyrt að Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður á Kjarnanum, hefði einnig kært Pál. Það er ekki rétt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert