Slysum á óvörðum vegfarendum fjölgað mikið

Talið er að aukninguna megi að stærstum eða öllum hluta …
Talið er að aukninguna megi að stærstum eða öllum hluta rekja til mikillar fjölgunar slysa á rafhlaupahjólum. mbl.is/Óskar

Ríflega 40% þeirra sem slösuðust alvarlega eða létu lífið í umferðinni í fyrra voru óvarðir vegfarendur. Hlutfallið hefur hækkað nokkuð mikið en lengst af hefur það verið um 30%. Talið er að aukninguna megi að stærstum eða öllum hluta rekja til mikillar fjölgunar slysa á rafhlaupahjólum.

Óvarðir vegfarendur er sam­heiti yfir þá veg­far­end­ur sem eru gang­andi og hjólandi á reiðhjólum, rafmagnsreiðhjólum og rafhlaupahjólum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samgöngustofu.

Fjallað um slysaþróun

Þar segir að umferðarþing verði haldið á föstudaginn í húsnæði Gamla bíós í Reykjavík sem tileinkað verður umfjöllun og umræðu um öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Er yfirskrift þess „Virkar samgöngur – betri hreyfing“.

Á þinginu verður m.a. fjallað um leiðir, hugmyndir og úrræði til eflingar öryggis þessara ferðamáta. Þá verður fjallað um slysaþróun, viðbrögð nágrannaþjóða við nýjungum eins og rafhlaupahjólum og reglusetningar í því sambandi.

Tillögur starfshóps innviðaráðherra um setningu reglna um svonefnd smáfarartæki, verða kynntar og fjallað verður um Ísland sem hjólaland, áhrif fyrirhugaðrar Borgarlínu á þessa samgöngumáta og samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðarinnar um stofnhjólanet höfuðborgarsvæðisins.

Áskoranir fatlaðs fólks

Auk þess verða niðurstöður rannsóknar á hjálmanotkun á fjölförnum stígum höfuðborgarsvæðisins kynntar og leitað verður svara við spurningunni um hver séu möguleg og væntanleg farartæki framtíðarinnar.

Að lokum má geta áhugaverðar umfjöllunar um þær áskoranir sem fatlað fólk stendur frammi fyrir sem virkir vegfarendur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert