Sérsveitin handtók mann í Holtasmára

Sérsveit ríkislögreglustjóra. Mynd úr safni.
Sérsveit ríkislögreglustjóra. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sérsveitin aðstoðaði við handtöku á karlmanni í Holtasmára í hádeginu í dag. 

Gunn­ar Hörður Garðars­son, sam­skipta­stjóri rík­is­lög­reglu­stjóra, staðfesti þetta í samtali við mbl.is.

Gunnar gat ekki tjáð sig meira um málið að svo stöddu. 

Fréttablaðið segir að sögn sjónarvotta hafi lögregla lokað fyrir umferð á svæðinu og að sést hafi fjöldinn allur af lögreglubílum og ómerktum lögreglubílum. Þá hafi sérsveitarmenn verið vopnaðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert