Hitamet á haustjafndægri

Dalatangi á Austurlandi á hitamet á haustjafndægri hér á landi, …
Dalatangi á Austurlandi á hitamet á haustjafndægri hér á landi, 24,1°C. Kort/Map.is

Á föstudaginn var haustjafndægur, en það er þegar dagurinn er um það bil jafnlangur nóttunni hvar sem er á jörðinni. Helgast það af því að þá er sól beint yfir miðbaug jarðar. Eru jafndægur bæði að vori og hausti.

Trausti Jónsson veðurfræðingur bendir á það í tísti á Twitter að aldrei áður hafi jafn hár hiti mælst á haustjafndægri hér á landi og síðasta föstudag. Þá mældist hitinn á Dalatanga, nesi á milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar, 24,1°C. Hæsti hiti sem áður hafði mælst um haustjafndægur mældist árið 1973, þá 23,5°C, einnig á Dalatanga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert