Lægðin farin að missa kraftinn

Vindaspáin á landinu kl. 9.
Vindaspáin á landinu kl. 9. Kort/Veðurstofa Íslands

Lægðin sem olli aftakaveðri á austanverðu landinu í gær er nú stödd 350 km NA af Langanesi og á leið suðsuðaustur. Hún er því heldur að nálgast landið en á móti kemur að hún er farin að grynnast og missa kraft sinn, að því er kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

„Niðurstaðan af þessu er að versta veðrið austanlands var afstaðið í gærkvöldi, en enn má búast við norðvestan stormi eða roki á Austfjörðum fram eftir degi. Þar lægir síðan svo um munar í kvöld og nótt, en þá hefur áðurnefnd lægð fjarlægst landið, ásamt því að hún heldur áfram að grynnast,“ segir í hugleiðingunum.

Í dag verður skýjað að mestu á Austurlandi og dálítil rigning eða slydda eftir hádegi. Á vesturhelmingi landsins verður hæg norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s, og léttskýjað en fyrir vestan land er staddur hæðarhryggur sem stjórnar veðrinu á þessum hluta landsins.

Hið rólegasta veður á morgun

Þá segir að á morgun lægi enn frekar við austurströndina og þá verði komið hið rólegasta veður á landinu öllu.

Ekki er búist við úrkomu að neinu ráði en verður væntanlega skýjað um landið norðaustanvert. Í öðrum landshlutum ætti þó eitthvað að sjást til sólar.

Kemur fram að hitinn í dag og morgun verður svipaður. Svalast um tvær gráður norðaustanlands en allt að 10 stig hiti yfir hádaginn sunnan heiða.

Veður á mbl.is.

Lægðin er farin að grynnast og missa kraft sinn.
Lægðin er farin að grynnast og missa kraft sinn. Kort/mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert