„Man ekki eftir svona víðtæku foktjóni“

An­gró, sögu­frægt bryggju­hús á svæði Tækni­m­inja­safns Aust­ur­lands, hrundi í óveðrinu …
An­gró, sögu­frægt bryggju­hús á svæði Tækni­m­inja­safns Aust­ur­lands, hrundi í óveðrinu í gær. Ljósmynd/ Helgi Haraldsson

Ofsaveður á Austurlandi er að ganga niður að sögn Sveins Hall­dórs Odds­sonar Zoëga, formanns svæðis­stjórn­ar björg­un­ar­sveita á Aust­ur­landi.

„Það hafa verið lítils háttar útköll, tvö í nótt og í morgun. Það er ansi hvasst ennþá, en nokkuð gott þó miðað við gærdaginn.“

Sveinn segir að líklega hafi flestallt fokið í gær. Björgunarsveitir eru því ekki í meiri viðbragðsstöðu en vant er.

„Þetta er ekkert í líkingu við gærdaginn þar sem röðuðust inn 50 verkefni á skömmum tíma, sérstaklega á Seyðisfirði og Reyðarfirði. Ég hef ekki heyrt af því að nokkur hafi slasast en það hefur orðið mikið tjón á húsnæði.“

„Bindur þetta ekkert niður“

Sveinn hefur verið í björgunarsveit í 30 ár. Hann segist hafa séð verra veður í Neskaupstað en man ekki eftir svona miklu tjóni vegna veðurs í samanburði við það sem hefur verið á Reyðarfirði.

„Ég man ekki eftir svona stóru og víðtæku foktjóni. Við gerum ekkert í því þegar það fýkur hlið úr iðnaðarhúsnæði nema passa að enginn sé fyrir brakinu.

Þú bindur þetta ekkert niður eða lokar húsinu í þessu veðri. Þetta snýst bara um að tryggja öryggi fólks.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert