Sjúkrabíll lenti í árekstri á leið í brunaútkall

Sjúkrabílar fyrir utan Aktu Taktu í Garðabæ.
Sjúkrabílar fyrir utan Aktu Taktu í Garðabæ. Ljósmynd/Aðsend

Sjúkrabíll lenti í árekstri áleiðis í brunaútkall í Hafnarfjörð í morgun. Áreksturinn varð í Garðabæ á gatnamótunum við Olís, Orkuna og Aktu Taktu.

Varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við mbl.is að engin slys hafi orðið á fólki.

„Það varð eignatjón, smá tafir á umferð en það er verið að greiða úr þessu. Eldútkallið reyndist  minni háttar og það eru til fleiri bílar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert