Tímabil endurhæfingarlífeyris úr 3 í 5 ár

Guðmundur Ingi Guðbrandsson er félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson er félags- og vinnumarkaðsráðherra. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Drög að frumvarpi um að lengja greiðslutímabil endurhæfingarlífeyris hafa verið sett í samráðsgátt stjórnvalda. Í drögunum er lagt til að tímabil endurhæfingarlífeyris verði allt að fimm ár í stað þriggja ára samkvæmt gildandi lögum. Frumvarpið er fyrsta skrefið í umbyltingu á greiðslu- og þjónustukerfi almannatrygginga vegna starfsgetumissis.

Í frumvarpsdrögunum er lagt til að greiðslutímabil endurhæfingarlífeyris verði lengt þannig að það verði allt að 36 mánuðir í stað 18 mánaða eins og nú. Einnig að heimild til að framlengja greiðslutímabilið verði lengd úr 18 mánuðum í tvö ár.

Jafnframt er lagt til að sett verði það skilyrði fyrir framlengingu greiðslna að starfsendurhæfing með aukna atvinnuþátttöku að markmiði sé enn metin raunhæf. Þannig hefur efni frumvarpsins mikla þýðingu í tengslum við störf nefndar um velferð og virkni á vinnumarkaði sem leitar meðal annars leiða til að draga úr ótímabæru brotthvarfi af vinnumarkaði og styðja við farsæla endurkomu starfsfólks, svo sem eftir langvinn veikindi.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu að efni frumvarpsins er mikilvægt fyrir fólk sem missir starfsgetuna, enda er því ætlað að stuðla að árangursríkri starfsendurhæfingu og auka möguleika fólks til virkni í lífi og starfi. 

„Frumvarpið er auk þess þýðingarmikið fyrir þær áherslur mínar sem snúa að heildrænni nálgun og aukinni samfellu í starfsendurhæfingu fólks.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert