Hæglætisveður eftir illviðri síðustu daga

í dag má vænta þess að veðrið verði betra en …
í dag má vænta þess að veðrið verði betra en aftakaveður helgarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Nú hefur vindur gengið niður á austurhluta landsins eftir illviðri síðustu daga, og í dag og á morgun verður hæglætisveður á landinu.“

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Í dag er spáð norðlægri eða breytilegri átt 3-10 m/s. Bjart verður með köflum en skýjað verður norðaustantil og sums staðar lítilsháttar rigning.

Þá er spáð 2 til 10 stiga hita en mildast verður sunnan heiða.

Á morgun er spáð hægum vindi og dálítilli vætu á víð og dreif en lengst af verður þurrt á Norðurlandi. Þá má búast við 4 til 10 stiga hita.

Veður á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert