Tómas tjáir sig um ásakanir Önnu Dóru

Tómas Guðbjartsson
Tómas Guðbjartsson Rax / Ragnar Axelsson

Tómas Guðbjartsson, læknir og stjórnarmaður í Ferðafélagi Íslands, hefur fundið sig knúinn til að tjá sig vegna ásakana af hálfu fyrrverandi forseta félagsins, Önnu Dóru Sæþórsdóttur, í kjölfar afsagnar hennar. 

„Ég hef aldrei lagt til að fyrrverandi stjórnarmaður tæki aftur sæti í stjórn félagsins, eða krafist þess að hann komi aftur til starfa fyrir félagið. Hann hefur heldur ekki krafist þess og var nýr stjórnarmaður kosinn í hans stað á síðasta aðalfundi félagsins,“ skrifar Tómas í færslu á facebooksíðu sinni. 

Taldi rétt að erindið fengi formlega umfjöllun

Hann segir að umræddur stjórnarmaður hafi sent stjórn félagsins erindi síðastliðið vor þar sem hann óskaði eftir því að fá að útskýra sína hlið á skyndilegu brotthvarfi úr stjórn í nóvember 2021. 

Taldi ég á stjórnarfundi rétt að erindið fengi formlega umfjöllun stjórnar, sem forseti taldi ekki ástæðu til, en mér var falið að koma á óformlegum fundi sem forseti hugðist ekki sækja.

Tómas segir viðskilnað forseta við stjórn og framkvæmdastjóra Ferðafélags Íslands sorglegt mál, ekki síst fyrir Ferðafélag Íslands. Staðreyndum sé snúið á hvolf og umræðan færð frá þeim alvarlega samskiptavanda sem litað hafi störf stjórnar síðastliðið ár.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert