Stórbruni á Egilsstöðum

Mikill eldur logar í verslun og þvottahúsi Vasks á Egilsstöðum. Slökkvilið og aðrir viðbragðsaðilar eru að störfum á staðnum. Fólk er ekki talið í hættu.

Þetta staðfestir Guðmundur Björnsson Hafþórsson, eldvarnareftirlitsmaður Brunavarna á Austurlandi. „Þetta gerðist hratt,“ segir hann.

Landsnet í hinum enda hússins

Lögregla telji að fólk hafi þó náð að forða sér áður en eldurinn breiddist út.

Eldur logar einnig í nokkrum bifreiðum fyrir utan húsið en Landsnet er staðsett í hinum enda þess.

Vaskur er þvottahús, efnalaug og verslun með hreinlætisvörur, skrifstofuvörur, hljóðfæri, víngerðarefni, búsáhöld, leikföng og hannyrðavörur.

Uppfært:

Slökkvilið er að störfum á staðnum.
Slökkvilið er að störfum á staðnum. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert