Þrettán brugghús komin með leyfi

Bás Brothers Brewery úr Eyjum, á bjórhátíð í sumar.
Bás Brothers Brewery úr Eyjum, á bjórhátíð í sumar. Mbl.is/Björn Jóhann

Þrettán handverksbrugghús eru komin með leyfi frá sýslumanninum á Suðurlandi til að selja eigin framleiðslu út af framleiðslustað.

Þetta kemur fram í svari sýslumanns við fyrirspurn mbl.is. Smiðjan brugghús, í Vík, varð í júlí síðastliðnum fyrsta brugghúsið sem fékk í hendurnar leyfi til að selja bjór á framleiðslustað í samræmi við breytt lög um smásölu áfengis. 

Brugghúsin sem hafa fengið leyfi eru eftirtalin:

  • Hið austfirska bruggfélag ehf.
  • Bruggsmiðjan Kaldi ehf.
  • Litla Brugghúsið ehf.
  • Sunna ehf.
  • Dondi ehf.
  • 22.10 ehf.
  • S.B. brugghús ehf.
  • Dokkan brugghús ehf.
  • JG Bjór ehf.
  • The Brothers Brewery ehf.
  • Einfalt ehf.
  • Eimverk ehf.
  • Smiðjan brugghús ehf.
Bruggsmiðjan Kaldi er á meðal þeirra sem hafa fengið leyfi.
Bruggsmiðjan Kaldi er á meðal þeirra sem hafa fengið leyfi. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Misjafnt er hvað leyfisferlið tekur langan tíma, segir einnig í svari sýslumanns. Embættið sendir umsóknir til umsagnar til sveitarfélaga þar sem ferlið tekur mislangan tíma.

„Sveitarfélögin þurfa að taka afstöðu til 5 atriða í umsögn sinni og þurfa að kalla eftir upplýsingum frá t.d. heilbrigðiseftirliti og slökkviliði. Stysti tíminn hingað til hefur verið 8 dagar, frá því að sótt var um leyfi og þangað til það var gefið út,“ segir í svarinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert