Harður árekstur á brúnni við Hádegismóa

Sjúkrabíll og dælubíll komu á staðinn.
Sjúkrabíll og dælubíll komu á staðinn. Ljósmynd/Aðsend

Árekstur varð á milli tveggja bifreiða á brúnni yfir Suðurlandsveg. Brúin liggur frá Bæjarhálsi yfir í Hádegismóa.

Samkvæmt sjónarvottum var áreksturinn mjög harður og eru bílarnir illa farnir. 

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var sjúkrabifreið send á staðinn en ekki þurfti að flytja neinn af vettvangi á spítala eftir skoðun.

Dælubíll slökkviliðsins beið á vettvangi eftir að bílarnir voru fjarlægðir en hreinsa þarf veginn af braki og olíu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert