Fjölmennt á árshátíð lögreglu í gær

Árshátíðin heppnaðist vel.
Árshátíðin heppnaðist vel. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Árshátíð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fór fram í gærkvöldi. Í dagbók lögreglu kemur fram að árshátíð hafi verið sú fjölmennasta sem haldin hefur verið. 

„Fjölmennasta árshátíð lögreglu sem haldin hefur verið fór vel fram og var hin besta skemmtun,“ segir í dagbók lögreglu.

Árshátíð lögreglunnar hefur verið í fréttum undanfarna daga vegna rannsóknar lögreglu á ætluðum undirbúningi hryðjuverka.

Sam­kvæmt heim­ild­um Morg­un­blaðsins sýndu menn­irn­ir fjór­ir, sem voru hand­tekn­ir í um­fangs­mikl­um aðgerðum, árs­hátíð lög­reglu­manna sér­stak­an áhuga.

Í kjölfarið sagði Fjöln­ir Sæ­munds­son, formaður Lands­sam­bands lög­reglu­manna, marga lögreglumenn og maka þeirra ekki geta hugsað sér að mæta á árshátíðan vegna fregnanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert