„Ánægjuleg og erfið“ heimsókn í Za’atari-búðirnar

Frá ferðalagi Ellenar. Hún er sitjandi fyrir miðju.
Frá ferðalagi Ellenar. Hún er sitjandi fyrir miðju. Ljósmynd/Aðsend

Ellen Calmon hefur tekið formlega við störfum sem ný framkvæmdastýra Barnaheilla. Hún tekur við störfum eftir að hafa ferðast til Jórdaníu og Ítalíu þar sem hún kynnti sér verkefni Barnaheilla – Save the Children þar í landi.

Meðal annars heimsótti hún Za’atari flóttamannabúðirnar sem liggja við landamæri Sýrlands en þær eru stærstu flóttamannabúðir í heimi. Þar dvelja 81.000 íbúar án ríkisfangs. 

„Heimsóknin á skrifstofu Barnaheila – Save the Children á Ítalíu var mjög lærdómsrík fyrir mig, nýja í starfi. Það var mjög áhugavert að kynnast því sem samtökin eru að gera á Ítalíu og öðlast þannig örlitla innsýn inn í hversu stór og megnug Barnaheill - Save the Children samtökin eru,” segir Ellen um reynslu sína af heimsókn sinni, í tilkynningu.

Ljósmynd/Aðsend

„Heimsóknin í flóttamannabúðirnar í Za’atari var bæði ánægjuleg og erfið í senn. Það er erfitt að horfa upp á tugþúsundir fólks, fjölskyldur búa við þessar aðstæður sem eru sannarlega ekki aðstæður frelsis eins og við þekkjum það. Fjölskyldurnar eru hins vegar í nokkuð öruggum aðstæðum í búðunum sem er mest um vert. Ánægjan var hins vegar fólgin í því að sjá hversu mikilvægt starf Barnaheilla í Jórdaníu er. Samtökin skapa öruggar aðstæður fyrir börnin á Barnvænum svæðum þar sem börnin fá að njóta sín í leik og námi,“ bætir hún við.

Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert