Fjórir handteknir vegna gruns um manndráp

Ólafsfjörður.
Ólafsfjörður. mbl.is/Sigurður Bogi

Fjórir hafa verið handteknir í Ólafsfirði eftir að tilkynning barst um að karlmaður hafi verið stunginn þar í bæ með eggvopni.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra að óskað hafi verið eftir lögregluaðstoð að húsi í Ólafsfirði.

Þegar fyrstu lögreglumenn komu á vettvang voru endurlífgunartilraunir hafnar á karlmanni sem var með áverka. Læknir og sjúkraflutningamenn komu einnig á vettvang en endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn á vettvangi.

Þeir fjórir sem voru handteknir njóta allir réttarstöðu sakborninga á fyrstu stigum málsins og á meðan aðkoma þeirra að málinu er rannsökuð. Enginn er eftirlýstur vegna málsins, að því er segir í tilkynningunni.

„Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra, sem nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og mikil vinna hjá lögreglu framundan. Vegna rannsóknarhagsmuna er því ekki hægt að veita frekari upplýsingar að svo komnu máli. Ákvörðun um hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum sakborninganna verður tekin seinna í dag,“ segir í tilkynningunni.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert