Guðrún Óla nýr ritstjóri Vikunnar

Guðrún Óla mun ritstýra Vikunni.
Guðrún Óla mun ritstýra Vikunni. Ljósmynd/Birtíngur

Guðrún Óla Jónsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri Vikunnar. Hún hefur starfað sem blaðamaður á Vikunni frá árinu 2018 en var áður blaðamaður á sunnudagsblaði Morgunblaðsins og Morgunblaðinu auk þess sem hún las fréttir á K100.

Hún lauk meistaranámi í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands árið 2014 og er með B.Ed.-gráðu í íslenskukennslu. Guðrún Óla hefur einnig getið sér gott orð sem söngkona, að segir í tilkynningu frá Birtíngi, útgáfufélagi Vikunnar.

Haft er eftir henni að hún sé þakklát fyrir tækifærið og traustið sem henni er sýnt.

„Það er gott, en ekki síður mikilvægt að tímaritaútgáfa lognist ekki út af þrátt fyrir allar þær breytingar sem hafa átt sér stað í hröðu nútímasamfélagi. Við hjá Birtíngi höfum verið í stafrænni uppbyggingu sem við munum halda áfram. Það eru spennandi tímar framundan, en það er samt fátt sem jafnast á við að fletta tímariti yfir góðum kaffibolla.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert