Nágrannasveitarfélögin taka fram úr Reykjavík

Samtals eru nú rúmlega 8.100 íbúðir í byggingu á landinu …
Samtals eru nú rúmlega 8.100 íbúðir í byggingu á landinu öll, þar af um 5.700 á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samtals eru hafnar framkvæmdir við 8.113 íbúðir á landinu öllu samkvæmt talningu í ágúst og september. Til samanburðar var fjöldinn í mars 7.260 og í september í fyrra 6.001. Nemur fjölgunin milli ára því 35,2%. Þetta er niðurstaða talningar sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Samtök iðnaðarins stóðu saman að.

Höfuðborgarsvæðið með 70% íbúða í byggingu

Samtals eru 2.433 íbúðir í byggingu í Reykjavík og aðrar 3.263 íbúðir í byggingu annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Það gerir tæplega 5.700 íbúðir samtals á höfuðborgarsvæðinu, eða 70,2% af íbúðum í uppbyggingu á landinu í heild. Til samanburðar var hlutfallið 70,7% í talningunni í mars. Í síðustu talningum hefur Reykjavíkurborg verið með flestar íbúðir í byggingu, en nú virðast önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu vera að taka fram úr höfuðborginni varðandi íbúðir í byggingu.

Mest öll aukningin síðasta árið hefur verið í íbúðum á …
Mest öll aukningin síðasta árið hefur verið í íbúðum á fyrstu fjórum byggingarstigum. Það þýðir að enn er eitthvað í að stærsti hluti íbúðanna komi á markað. Graf/HMS

Í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins, eru samtals 1.516 íbúðir í byggingu, en annars staðar á landsbyggðinni eru 980 íbúðir í byggingu. Hefur íbúðum í byggingu á landsbyggðinni fjölgað um 268 síðasta hálfa árið og um 367 ef miðað er við september í fyrra. Nemur það tæplega 60% aukningu milli ára.

Áætla að 1.229 íbúðir komi á markað í viðbót á þessu ári

Í talningunni er lagt mat á framvindu hverrar íbúðar og áætla HMS og SÍ að 1.229 nýjar íbúðir komi á markað á landinu öllu það sem eftir er þessa árs og að á næsta ári verði þær 3.169 talsins. Þá er gert ráð fyrir að rúmlega 3.200 íbúðir af þeim sem eru nú í byggingu verði fullbúnar árið 2024.

Fjöldi íbúða á höfuðborgarsvæðinu í byggingu hefur ekki enn náð …
Fjöldi íbúða á höfuðborgarsvæðinu í byggingu hefur ekki enn náð sama fjölda og var 2018 og 2019. Graf/HMS

Samkvæmt talningunni fjölgaði íbúðum á fyrsta framvindustigi mest. Þar fjölgaði íbúðum um rúmlega 39% frá síðustu talningu. Í tilkynningu vegna talningarinnar segir að það gefi til kynna að mörg ný verkefni hafi farið af stað frá því í mars. Þar sem fjölgun íbúða almennt hefur verið mest undanfarið ár á fyrstu fjórum framvindustigum (af sjö) þýðir það að nokkurn tíma mun taka fyrir þessa fjölgun að skila sér á markaðinn sem fullbúnar íbúðir.

91,8% íbúðanna eru í fjölbýli

Þegar horft er til höfuðborgarsvæðisins eru 5.696 íbúðir í byggingu. Ef framvindustig eitt er undanskilið eru þær 4.396. Þar af eru 4.034 íbúðir í fjölbýli, eða 91,8%. Í tilkynningu vegna talningarinnar kemur fram að þegar mest hafi verið í gangi á árunum 2018 og 2019 hafi nærri því 5.000 íbúðir verið í byggingu á höfuðborgarsvæðinu á framvindustigum umfram fyrsta stig, og því sé ljóst að umsvifin hafi ekki enn náð sömu hæðum og þá.

Reykjavík hefur löngum verið með forystuna varðandi fjölda íbúða í …
Reykjavík hefur löngum verið með forystuna varðandi fjölda íbúða í byggingu, en nú er samanlagður fjöldi annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu orðinn meiri. Graf/HMS

Mikill gangur í Kraganum

Þegar fjöldi íbúða í byggingu er skoðaður sem hlutfall af núverandi fjölda fullbúinna íbúða í hverju sveitarfélagi/svæði sést að það hlutfall hefur lækkað í Reykjavík, en hækkað á öðrum svæðum, sérstaklega í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, sem jafnan ganga undir nafninu Kraginn. Í tilfelli Reykjavíkurborgar er hlutfallið nú 4,4%, en hjá öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu er það nú 8,9% og hefur hækkað úr 4,7% miðað við talninguna í september í fyrra.

Fjöldi íbúða í byggingu sem hlutfall af fjölda núverandi íbúða …
Fjöldi íbúða í byggingu sem hlutfall af fjölda núverandi íbúða í sveitarfélaginu/svæðinu er hefur hækkað mikið á öllum svæðum nema í Reykjavík. Graf/HMS

Í sveitarfélögum í nágrenni við höfuðborgarsvæðið hefur hlutfallið hækkað úr 6,2% upp í 7,8% og annars staðar á landsbyggðinni er hlutfallið nú 2,8% en var 1,7% fyrir ári síðan.

Tekið er fram að langmesta fjölgun íbúða í byggingu sé í Hafnarfirði, en þar hefur íbúðum í byggingu fjölgað um 559 frá því í mars, eða um 69%. Þar á eftir kemur Árborg, þar sem íbúðum í byggingu hefur fjölgað um 187, eða um 52% og í Kópavogi þar sem íbúðum í byggingu hefur fjölgað um 105, eða 12,7%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert