Eldur í rusli í Álfsnesi

Útkallið barst um ellefuleytið.
Útkallið barst um ellefuleytið. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um ellefuleytið í gærkvöldi vegna elds sem hafði kviknað í rusli á urðunarstað Sorpu í Álfsnesi. 

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu gekk slökkvistarfið mjög hratt fyrir sig. Líklegt er að um sjálfsíkveikju hafi verið að ræða.

Alls fór slökkviliðið í þrjú útköll á dælubílum í gærkvöldi og nótt, auk þess sem töluvert var að gera í sjúkraflutningum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert