Eldur kviknaði á æfingu sprengjusérfræðinga

mbl.is/Eggert

Eldur kviknaði í gróðri á meðan á æfingu sprengjusérfræðinga stóð innan svæðis Keflavíkurflugvallar. Brunavarnir Suðurnesja voru kallaðar á vettvang klukkan 11.54.

Hóp­ar sprengju­sér­fræðinga frá fjór­tán aðild­ar­ríkj­um Atlants­hafs­banda­lags­ins (NATO) eru hér á landi og æfa viðbrögð við hryðju­verk­um. Æfing­in er skipu­lögð af séraðgerðasveit Land­helg­is­gæsl­unn­ar.

Að sögn varðstjóra hjá Brunavörnum Suðurnesja kviknaði í bifreið á svæðinu, sem var liður í æfingunni, en svo óheppilega vildi til að það kviknaði einnig í gróðri sem var þar í kring.

Viðstaddir réðu ekki við að slökkva gróðureldinn með slökkvitækjum og óskuðu því eftir aðstoð. Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli var búið að slökkva eldinn þegar Brunavarnir Suðurnesja komu að staðinn.

Að sögn varðstjórans var atvikið minniháttar og engin hætta skapaðist vegna þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert