Skólastjórnendur boðaðir á fund um kynferðisofbeldi

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur boðaða skólastjórnendur framhaldsskóla á fund um viðbrögð við kynferðisofbeldi. 

Þetta kemur fram á vefsíðu Stjórnarráðs Íslands.

Á fundinum verður kynnt fyrirmynd að viðbragðsáætlun sem skólar sem hafa ekki nú þegar áætlun geta nýtt þegar bregðast þarf við kynferðisofbeldi innan veggja skólanna. 

Brugðist við ákalli

Að því sem fram kemur í tilkynningu Stjórnarráðsins er markmiðið með fundinum að bregðast við ákalli um skýrara verklag og að tryggt verði að viðbrögð séu skilvirk og stuðli að öryggi nemenda. 

Þetta ákall kemur í kjölfar þess að nemendur í Menntaskólanum í Hamrahlíð stigu fram lýstu því yfir að þeim væri nóg boðið vegna aðgerðarleysis skólastjórnenda gagnvart málum sem tengjast kynferðisofbeldi.

Mikil óánægja ríkir í Menntaskólanum við Hamrahlíð vegna viðbragða skólastjórnenda …
Mikil óánægja ríkir í Menntaskólanum við Hamrahlíð vegna viðbragða skólastjórnenda í málum sem tengjast kynferðisofbeldi á milli nemenda. mbl.is/Kristinn Magnússon

Í tilkynningu Stjórnarráðsins er ítrekað að samkvæmt lögum um framhaldsskóla eiga skólarnir að hafa heildstæða stefnu um það hvernig eigi að fyrirbyggja líkamlega, andlegt eða félagslegt ofbeldi innan veggja skólans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert