Umferðin aldrei mælst meiri í september

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í september reyndist 2,6 prósentum meiri en í sama mánuði fyrir ári. Umferðin hefur ekki áður mælst meiri í september.

Maí og september eru iðulega umferðarmestu mánuðirnir. Nú stefnir í að umferðin verði svipuð og í fyrra en minni en metárið 2019, að því er Vegagerðin greinir frá. 

Kort/Vegagerðin

Þá segir, að samkvæmt þremur lykilteljurum Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu hafi umferðin aukist þar um 2,6% milli september mánaða 2021 og 2022. Mest jókst umferð yfir mælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða um 4,4% en minnst yfir mælisnið á Reykjanesbraut eða um 0,9%.  Þessi aukning varð til þess að ekki hefur áður mælst meiri umferð í september á höfuðborgarsvæðinu. En fyrra umferðarmet var á síðasta ári þegar það fóru tæplega 178 þúsund ökutæki um sniðin þrjú að jafnaði á dag en í nýliðnum september var ökutækjafjöldinn kominn í rúmlega 182 þúsund ökutæki á dag.

September og maí eru gjarnan umferðarmestu mánuðir ársins á höfuðborgarsvæðinu og var maí á þessu ári sá umferðarmesti frá því að mælingar hófust en þá fóru rúmlega 183 þúsund ökutæki á sólarhring yfir mælisniðin þrjú að sögn Vegagerðarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert