Lögreglan óskar eftir vitnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi í Kópavogi …
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi í Kópavogi í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð í gær á gatnamótum Nýbýlavegar og Hjallabrekku í Kópavogi. Tilkynning um slysið barst klukkan 08.42 að morgni til. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Rauð vörubifreið og dökkgrá Volswagen bifreið lentu saman en ökumönnum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa. Þrír voru fluttir á slysadeild.

Vörubifreiðinni var ekið Nýbýlaveg til austurs en fólksbílnum til vesturs með fyrirhugaða aksturstefnu til vinstri, suður Hjallabrekku.

Þeir sem urðu vitni að árekstrinum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið sigrun.jónasdottir@lrh.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert