Með tæplega 3 kg af amfetamíni

Amfetamín, mynd úr safni.
Amfetamín, mynd úr safni. AFP

Embætti héraðssaksóknara hefur ákært mann á fertugsaldri fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum 2.947 gr. af amfetamíni, auk smáræðis af MDMA, 122 MDMA tafla og 87 gr. af kókaíni.

Í ákæru málsins kemur fram að efnin hafi verið hugsuð til sölu og dreifingar, en þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og að öll efnin verði gerð upptæk. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í vikunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert