Allar viðbragðsáætlanir Landsnets virkjaðar

Starfsmenn Landsnets að störfum fyrir tveimur árum.
Starfsmenn Landsnets að störfum fyrir tveimur árum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Allar viðbragðsáætlanir Landsnets hafa verið virkjaðar vegna óveðursins sem er spáð á sunnudaginn með tilheyrandi appelsínugulri viðvörun. Farið hefur verið yfir mönnun, staðsetningar á tækjum og ýmislegt fleira.

Fundarhöld í allan morgun

Að sögn Steinunnar Þorsteinsdóttur, upplýsingafulltrúa Landsnets, var morguninn nýttur til fundarhalda með almannavörnum, Vegagerðinni og fleiri viðbragðsaðilum þar sem rýnt hefur verið í veðurspána, en Landsnet annast flutning raforku og stjórnun raforkukerfa.

„Við höfum fundað með veðurfræðingi, sérstaklega með áhrif flutningskerfisins í huga, hvar mögulega við gætum lent í vandræðum og hvar ekki. Það eru tveir dagar í þetta og við munum fylgjast með vel um helgina og vonandi geta brugðist við ef eitthvað gerist,“ segir Steinunn, spurð út í viðbúnað Landsnets.

Landsnet hefur áhyggjur af ísingu á háspennulínum.
Landsnet hefur áhyggjur af ísingu á háspennulínum. mbl.is/Sigurður Bogi

Nálægt veðrinu 2019

Spurð hvort búist sé við álíka veðri og árið 2019 þegar fjöldi rafmangsstaura brotnaði, segir hún óvissu uppi um það.

„Við vitum aldrei nákvæmlega hvernig lægirnar eru þegar þær skella á landinu en mér heyrist veðurfræðingar telja að þetta verði nálægt veðrinu 2019 en því fylgdi ísing á línur hjá okkur. Það er kannski það sem við höfum áhyggjur af í augnablikinu.“

Starfsmenn Landsnets að störfum í fyrra.
Starfsmenn Landsnets að störfum í fyrra. Ljósmynd/Landsnet

103 staurar skemmdust

Stærstu bilanirnar í kerfi Landsnets árið 2019 urðu á Dalvíkurlínu, Kópaskerslínu, Laxárslínu og Húsavíkurlínu. Samtals skemmdust 103 staurar auk skemmda á tengivirkjum svo sem  Hrútatungu, að því er Steinunn greinir frá. 

Stærstu skemmdirnar í kerfi Landsnets urðu á eftirfarandi stöðum:

  • Dalvíkurlína 1. Þar urðu skemmdir á yfir 30 möstrum og á leiðara. 54 staurar brotnuðu og 31 þverslá vegna ísingar.
  • Kópaskerslína 1. Þar urðu skemmdir á 15 möstrum ásamt leiðara. 30 staurar brotnuðu og 15 þverslár vegna ísingar.
  • Laxárlína 1. Þar skemmdust 10 möstur ásamt leiðara. 16 staurar brotnuðu.
  • Tengivirkið í Hrútatungu. Þar voru mjög tíðar útleysingar vegna ísingar og seltu.
  • Húsavíkurlína 1. Þar brotnuðu 3 staurar ásamt þverslám.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert