Björgunarsveitir í viðbragðsstöðu

Björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu.
Björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Björgunarsveitir um allt land eru í viðbragðsstöðu en fyrsta hríðarveðri vetr­ar­ins er spáð á sunnu­dag­inn og fram á mánu­dags­morg­un. 

App­el­sínu­gul viðvör­un vegna veðurs tekur gildi fyr­ir Strand­ir og norður­land vestra, Norður­land eystra, Aust­ur­land að Glett­ingi og miðhá­lendi, á sunnudaginn. Þá verða gular viðvaranir í gildi fyrir aðra landshluta. Óveðrið byrj­ar á Vest­fjörðum og geng­ur síðan yfir landið til aust­urs.

Kar­en­ Ósk Lár­us­dótt­ir, verk­efna­stjóri hjá slysavarnafélaginu Lands­björg, segir aðgerðarstjórnendur björgunarsveita hafa setið fund með Veðurstofu.

Þá séu björgunarsveitir í viðbragðsstöðu og verða reiðubúnar að bregðast ef til þess kemur. Annars sé ekki búið að grípa til sérstakra ráðstafana.

Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir væntanlegt að allar samgöngur truflist á sunnudaignn. Er fólki ráðlagt að vera ekki á ferðinni á sunnudaginn, fara frekar á laugardagskvöldi eða bíða fram á mánudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert