Fjórði fjölmennasti september frá því mælingar hófust

Flestar brottfarir í ágúst voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna, um 53 …
Flestar brottfarir í ágúst voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna, um 53 þúsund talsins eða 30,1% af heild. Bandaríkjamenn hafa verið fjölmennasta þjóðernið í ágústmánuði frá 2013 og eru brottfarir þeirra í september álíka margar og í september 2017. mbl.is/Hákon

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 177 þúsund í nýliðnum september samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Um er að ræða fjórða fjölmennasta september frá því mælingar hófust.

Brottfarir í september voru 76% af því sem þær voru í september 2018 þegar mest var.

Tæplega þriðjungur brottfara í september var tilkominn vegna Bandaríkjamanna. Brottfarir Íslendinga voru um 60 þúsund í september sem er hæsti fjöldi Íslendinga í september frá upphafi, að því er fram kemur á vef Ferðamálastofu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert