Veðurspáin ískyggileg

Vindaspáin kl. 18 á sunnudag.
Vindaspáin kl. 18 á sunnudag. Kort/Veðurstofa Íslands

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, vekur athygli á ískyggilegri veðurspá á sunnudag.

Hann segir að á fjallvegum norðan- og norðaustanlands sé reiknað með stormi og stórhríð frá því um og fyrir hádegi og krapa á láglendi.

Suðaustanlands verða síðan skeinuhættir sviptivindar og sandfok.   

Veðurvefur mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert