Ísland beitir Íran þvingunaraðgerðum

„Mahsa Amini þurfti að gjalda með lífi sínu fyrir það …
„Mahsa Amini þurfti að gjalda með lífi sínu fyrir það eitt að hún klæddi sig ekki í samræmi við kröfur írönsku siðferðislögreglunnar,“ er haft eftir utanríkisráðherra í tilkynningu. mbl.is/Hákon Pálsson

Ísland mun framfylgja þvingunaraðgerðum sem Evrópusambandið hefur ákveðið að grípa til gagnvart Íran, vegna morðs stjórnvalda þar í landi á Masha Amini og ofsóknum gegn friðsömum mótmælendum. 

Aðgerðirnar sem nú hefur verið gripið til felast í frystingu eigna og ferðabanni til Evrópu. Ísland innleiðir Evrópugerðir vegna þvingunaraðgerða varðandi Íran, að því er segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins.

„Verður að bregðast við með skýrri fordæmingu“

„Mahsa Amini þurfti að gjalda með lífi sínu fyrir það eitt að hún klæddi sig ekki í samræmi við kröfur írönsku siðferðislögreglunnar. Þá hafa þau sem hafa mótmælt örlögum hennar og því ofríki sem konur í Íran þurfa að búa við hafa sætt fádæma hörku og ofbeldi af hálfu yfirvalda. Við slíka framgöngu er ekki hægt að una heldur verður bregðast við, bæði með skýrri fordæmingu og raunverulegum aðgerðum,“ er þar haft eftir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Ráðherraráð Evrópusambandsins bætti í gær 11 einstaklingum og fjórum lögaðilum á lista yfir þá sem sæta þvingunaraðgerðum samkvæmt gildandi regluverki sambandsins en á þvingunarlista ESB vegna Írans eru nú samtals 97 einstaklingar og átta lögaðilar. 

Er þar um að ræða einstaklinga og stofnanir, þar á meðal siðferðislögreglu og almenna lögreglu, sem ýmist eru talin bera ábyrgð á dauða Amini eða ofbeldisfullum aðgerðum gegn mótmælendum.

Sjálfvirkni er í reglugerðinni og því öðlast listabreytingar sjálfkrafa gildi um leið og þær eru birtar í Stjórnartíðindum ESB. Á þvingunarlista ESB vegna Írans eru nú 97 einstaklingar og átta lögaðilar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert