Andlát: Jóhannes Tómasson

Jóhannes Tómasson, fv. blaðamaður á Morgunblaðinu og upplýsingafulltrúi, er látinn, …
Jóhannes Tómasson, fv. blaðamaður á Morgunblaðinu og upplýsingafulltrúi, er látinn, sjötugur að aldri.

Jóhannes Tómasson, blaðamaður og fv. upplýsingafulltrúi, lést á Landspítalanum í Fossvogi 28. október síðastliðinn, sjötugur að aldri, eftir snarpa og krefjandi baráttu við krabbamein.

Jóhannes fæddist í Reykjavík 28. febrúar 1952. Foreldrar hans voru Anna Jóhannesdóttir húsfreyja, f. á Seyðisfirði 1924, d. 2018, og Tómas Árni Jónasson læknir f. á Ísafirði 1923, d. 2016.

Jóhannes ólst upp hjá foreldrum sínum fyrst, í Súðavík, síðar í Detroit í Bandaríkjunum þar sem Tómas stundaði framhaldsnám og þar hófst skólaganga Jóhannesar í leikskóla. Eftir heimkomuna tók við nám í Ísaksskóla, Breiðagerðisskóla, Hlíðaskóla og Gaggó Aust. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1972 og stundaði síðan nám í Kennaraháskóla Íslands. Jóhannes sótti ótal námskeið og fræðslu sem tengdist blaðamennsku og útgáfu. Hann hafði meirapróf í akstri og árið 2012 lauk hann diplómanámi í flugrekstrarfræði frá Keili.

Hann starfaði við blaðamennsku og útgáfustörf frá árinu 1976 þegar hann hóf störf á Morgunblaðinu. Eftir nokkurra ára starf þar var hann meðal annars ritstjórnarfulltrúi Læknablaðsins og starfaði nokkur ár að upplýsinga- og fræðslumálum hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og sinnti meðfram því ritstörfum fyrir ýmsa aðila í lausamennsku. Árið 1997 sneri hann aftur til starfa á Morgunblaðinu á fréttadeild, sinnti þar frétta- og greinaskrifum og vaktstjórn á fréttadeild. Árið 2006 var Jóhannes ráðinn upplýsingafulltrúi samgönguráðuneytisins, síðar innanríkisráðuneyti og starfaði þar í tólf ár með níu ráðherrum; ýmist innanríkis-, dómsmála- eða samgöngu- og sveitarstjórnarráðherrum.

Eftir að föstum störfum lauk fékkst hann við ýmis verkefni, m.a. ritun bókar um Björn Pálsson flugmann sem væntanleg er snemma næsta árs. Einnig nýtti hann meiraprófið og greip í akstur, þar á meðal afleysingar við akstur ráðherra ríkisstjórnarinnar.

Jóhannes var alla tíð virkur í félagsstörfum. Hann var félagi í Blaðamannafélagi Íslands og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum, sat m.a. í verðlaunanefnd Blaðamannaverðlauna og í siðanefnd félagsins. Hann var sæmdur gullmerki BÍ árið 2017. Þá sat Jóhannes í stjórn Krabbameinsfélags Reykjavíkur í mörg ár, sem formaður árin 1999-2007 og kosinn heiðursfélagi Krabbameinsfélags Íslands árið 2009. Einnig sat hann í stjórn Sambands íslenskra kristniboðsfélaga um tíma.

Jóhannes var alla tíð áhugamaður um flug og flugöryggi og sótti ráðstefnur um þau málefni ásamt stjórnarsetu í Þristavinafélaginu. Á sínum yngri árum söng hann í Æskulýðskór KFUM og KFUK, með sönghópnum Kórbroti og síðar með Mótettukórnum og var félagi í Kristilegum skólasamtökum og Kristilegu stúdentafélagi. Jóhannes spilaði badminton með félögum sínum tvisvar í viku í áratugi, las mikið og hafði ánægju af að ferðast bæði innanlands og utan og hefur víða farið og margs notið með fjölskyldu og vinum.

Jóhannes kvæntist 20. september 1975 eftirlifandi eiginkonu sinni, Málfríði Finnbogadóttur, f. í Reykjavík 1954. Þau eiga þrjú börn; Helga, útsendingarstjóra, f. 1976, Önnu, kennara, f. 1978, og Þórdísi, myndlistarmann, f. 1979. Jóhannes og Málfríður eiga átta barnabörn.

Við leiðarlok þakkar Morgunblaðið Jóhannesi samfylgdina og vel unnin störf og færir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.

Jóhannes Tómasson ásamt eiginkonu sinni, Málfríði Finnbogadóttur, og Hjálmari Jónssyni, …
Jóhannes Tómasson ásamt eiginkonu sinni, Málfríði Finnbogadóttur, og Hjálmari Jónssyni, framkvæmdastjóra Blaðamannafélags Íslands, en Jóhannes gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagið. hag / Haraldur Guðjónsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert