„Glórulaus hækkun“ á sköttum

Reykjavík.
Reykjavík.

„Það er glórulaus hækkun á þessum fasteignasköttum. Þetta er mjög íþyngjandi fyrir fyrirtæki í Reykjavík, alveg klárlega,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, en fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar og áætlun til næstu fimm ára var kynnt í borgarstjórn í gær. Þar kemur fram að gert sé ráð fyrir óbreyttu álagningarhlutfalli á fasteignagjöldum á næsta ári.

„Skatttekjurnar af þessu, miðað við áætlunina fyrir næsta ár, eiga að vera um 16,9 milljarðar króna. Það er fimm milljörðum hærri fjárhæð en fyrir fimm árum. Þetta er því búin að vera milljarða hækkun á ári sem hefur runnið í borgarsjóð á þessum tíma,“ segir Ingólfur og bætir við að í fjárhagsáætluninni sé gert ráð fyrir sömu hækkun árlega til ársins 2027. Skatttekjur borgarsjóðs verða því komnar í tæplega 21 milljarð undir lok áætlunarinnar og yfir 20 milljarða í lok kjörtímabils núverandi meirihluta í borginni.

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Morgunblaðið/ Árni Sæberg

Helmingur skatttekna

Álagningarprósenta borgarinnar er sú hæsta meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Hún var lækkuð úr lögbundnu hámarki, 1,65%, niður í 1,6% á milli áranna 2020 og 2021 en helst nú óbreytt. „Á sama tíma og borgin hefur verið afskaplega þver í því að lækka prósentuna um 0,05 prósentustig þá hafa sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu lækkað álagningarprósentuna. Samhliða því hefur grunnurinn hækkað mjög mikið,“ segir Ingólfur og nefnir að frá 2017 hafi Hafnarfjarðarbær lækkað prósentuna úr 1,65% niður í 1,4% eða um 0,25 prósentustig og Kópavogsbær úr 1,62% niður í 1,47% eða um 0,15 prósentustig.

„En það skiptir langmestu máli hvað Reykjavíkurborg gerir. Hún innheimtir um það bil helminginn af öllum skatttekjum í landinu af álagningu fasteignaskatts á húsnæði. Þannig að skattpíningin á sér stað þar.“

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert