Yngstu fulltrúarnir 15 ára og sá elsti 95 ára

Bjarni Benediktsson og eiginkona hans, Þóra Margrét Baldvinsdóttir. Í bakgrunni …
Bjarni Benediktsson og eiginkona hans, Þóra Margrét Baldvinsdóttir. Í bakgrunni sést Salome Þorkelsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hyllti Salome Þorkelsdóttur í setningarræðu sinni á landsfundi flokksins í dag en hún er elsti landsfundarfulltrúinn, 95 ára að aldri. 

Salome er fyrrverandi forseti Alþingis og var þingmaður í sextán ár. 

Þá minntist Bjarni einnig á Davíð Pétursson á Grund sem sat sinn fyrst landsfund árið 1959 og hefur ekki misst úr fund síðan, utan einu sinni. Þetta er því hans 31. landsfundur. 

Yngstu landsfundarfulltrúarnir eru þau Margrét Bára Birgisdóttir, úr Reykjavík og Hafþór Emil Ólason, frá Suðurnesjabæ, en þau eru aðeins 15 ára gömul. 

„Það er ekkert sem sýnir breiddina í flokknum okkar betur en þið, þessi fjölbreytti hópur,“ sagði Bjarni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert