Beint: Framboðsræður á landsfundi

Hægt er að fylgjast með framboðsræðum í beinu streymi á …
Hægt er að fylgjast með framboðsræðum í beinu streymi á mbl.is. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ræður frambjóðenda til formanns, varaformanns og ritara Sjálfstæðisflokksins fara fram á landsfundi flokksins klukkan 14:30 í dag. Hægt er að hlusta á framboðsræðurnar í beinu streymi hér á mbl.is.

Tafir urðu, en nú er stefnt að því að byrja klukkan 14:45.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, eru í framboði til formanns.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og varaformaður flokksins, sækist eftir endurkjöri, en hún er ein í framboði til varaformanns.

Þingmennirnir Vilhjálmur Árnason og Bryndís Haraldsdóttir og Helgi Áss Grétarsson varaborgarfulltrúi eru í framboði til ritara flokksins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert