Grunur um myglu á hjúkrunarheimilinu Hlíð

Mygla hefur fundist í húsakynnum dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hlíðar við …
Mygla hefur fundist í húsakynnum dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hlíðar við Austurbyggð. Ljósmynd/Akureyrarbær

Grunur leikur á um að mygla hafi fundist í húsnæði dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hlíðar við Austurbyggð á Akureyri og að heilsufarsleg einkenni einhverra íbúa þar megi rekja til ástands húsnæðisins. Greint er frá þessu á bæjarmiðlinum Akureyri.net

Segir þar að Akureyrarbær og heilbrigðisráðuneytið, eigendur húsnæðisins, hafi ekki samþykkt að láta gera nánari úttekt á loftgæðum innanhúss og greiða fyrir hana en tvær verkfræðistofur hafi verið tilbúnar að verða við beiðninni. Þetta kemur fram í bréfi framkvæmdastjóra Heilsuverndar hjúkrunarheimilis (HH) sem barst starfsfólki í dag.

Tveir íbúar fluttir annað

Fulltrúar frá HH hafa óskað eftir fundi með fulltrúum heilbrigðisráðuneytisins og Akureyrarbæ eins fljótt og unnt er.

Tveir íbúar munu flytja frá Hlíð þar sem grunur liggur á um að einkenni þeirra megi rekja til húsnæðisins.  „Ekki verða teknir inn nýir íbúar í þau rými meðan óvissa ríkir um hvernig brugðist verður við niðurstöðum úttektar á húsnæðinu,“ segir í bréfinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert