Alls bárust 14 umsóknir um embætti ferðamálastjóra, en staðan var auglýst þann 21. október og umsóknarfrestur rann út þann 10. nóvember. Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Þriggja manna hæfnisnefnd skipuð af Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra.
Ráðherra mun síðan skipa í embættið til fimm ára frá og með 1. janúar 2023.
Umsækjendur eru: