Ræða umskipti í öryggismálum í Veröld

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Varðberg, samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál, Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands í samvinnu við Nýja norræna samstarfshópinn um öryggismál á norðurslóðum og Konunglega danska varnarmálaháskólann, standa fyrir opnu malþingi í Auðarsal í Veröld – húsi Vigdísar í dag.

Yfirskrift málþingsins er Umskipti í öryggismálum á Norðurslóðum og hefst klukkan 16.

„Öryggisumhverfi norðurslóða hefur tekið örum breytingum á liðnum misserum vegna áhrifa loftslagsbreytinga og innrásar Rússa í Úkraínu. Eru þessar breytingar þess eðlis að þær réttlæti skjót umskipti á sviði öryggismála? Eða eru þessi umskipti eðlilegt framhald í ljósi ríkjandi viðhorfa í stjórnmálum og öryggismálum?“ segir í lýsingu viðburðarins.

Setningarávörp flytja Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður og formaður Varðbergs og Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar.

Auk þess verða frummælendur eftirfarandi:

  • Gunhild Hoogensen Gjørv, prófessor við Norðurslóðaháskólann í Noregi.
  • Jeppe Strandsbjerg, lektor, Nuuk, Konunglega danska varnarmálaháskólanum.
  • Rasmus Gjedssø Bertelsen, Nansen-prófessor við Háskólann á Akureyri.
  • Fundarstjóri: Björn Bjarnason, fyrrv. ráðherra og alþingismaður
Dagskrá málþingsins
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert